Forystumenn ASÍ hafa lýst því yfir að þeir hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum með þá niðurstöðu stjórnvalda. Þorgerður vísar á bug fullyrðingum ASÍ um að stjórnvöld vilji þar með ekki styrkja lágtekjufólk. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar komi, þvert á móti fram, að stefnt sé að lækkun skatta, hækkun persónuafsláttar, hækkun barnabóta og einföldun almannatrygginga, með það að markmiði að tryggja hag látekju- og millitekjufólks. Því markmiði verði hins vegar ekki náð eins og ASÍ krefjist, segir Þorgerður.