SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu segja faggildingaryfirvöldum um að kenna að faggilding íslenskra fyrirtækja á því sviði ekki vera gilda. Þetta valdi innlendum aðilum verulegum kostnaði og óhagræði.

Segja þau starfsemi faggildingaryfirvalda hér á landi vera marklausa og ekki uppfylla á neinn hátt þær kröfur sem gerðar eru til slíkrar starfsemi.

Hafa löngu sannað gildi sitt við eftirlit

„Faggiltar stofur hafa starfað hérlendis í tvo áratugi, s.s. á sviði bifreiðaskoðana, matvælaskoðana, rafskoðana, skipaskoðana og löggildinga mælitækja auk markaðsgæslu, og hafa því fyrir löngu sannað gildi sitt sem öruggur og hagkvæmur kostur á sviði eftirlits,“ segja samtökin í tilkynningunni

„Að mati SVÞ hefur stjórnsýsla faggildingar ekki að öllu leyti staðið undir þeim væntingum og skyldum sem samevrópskt regluverk leggur á herðar innlendra stjórnvalda.

Starfssemin marklaus

Þar til íslenska ríkið bætir úr þeim ágöllum sem uppi eru mun starfsemi faggildingaryfirvalda hér á landi vera marklaus og sem afleiðing þessa er að faggildingar sem stafa frá Íslandi teljast ekki gildar og ekki unnt að byggja á þeim sem slíkum.

Ástand þetta hefur haft í för með sér verulegan kostnað fyrir innlenda aðila og hafa faggiltar skoðunarstofur á mörgum sviðum þurft að sækja nauðsynlega þjónustu erlendis frá með tilheyrandi kostnaði og óhagræði.

Að mati SVÞ hefur núverandi ástand mála verulega skaðleg áhrif á starfsemi faggiltra skoðunarstofa og gengur gegn markmiði samningsins um Evrópska efnahagssvæðisins um frelsi til að veita þjónustu og frjálsa vöruflutninga.

ESA tekur undir sjónarmið samtakanna

Í ljósi þessa sendu SVÞ í maí sl. kvörtun á Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) þar sem þess er óskað að stofnunin taki mál þetta til skoðunar.

Hinn 21. október sl. sendi ESA erindi á innlend stjórnvöld þar sem tekið er undir sjónarmið SVÞ í málinu um að starfsemi stjórnvalda á sviði faggildingar uppfylli á engan hátt þær kröfur sem gerðar eru til slíkrar starfsemi.

Málinu er enn ekki lokið af hálfu ESA en SVÞ telja þó að framkomnar athugasemdir stofnunarinnar séu þess eðlis að ekki verður undan þeim vikið.

Því skora SVÞ á stjórnvöld að taka stjórnsýslu faggildingar til gagngerar endurskoðunar með það að markmiði að uppfylla þær skyldur sem á íslenska ríkinu hvíla og þannig tryggja framgang faggildingar hér á landi.“