Hagnaður Stoða, áður FL Group, á síðasta ári nam 1.127 milljónum króna samkvæmt ársreikningi sem var birtur 30. mars síðastliðinn. Eignir félagsins í árslok námu 35,4 milljörðum og skuldir um 4 milljörðum. Eigið fé nam því 31,4 milljörðum og eiginfjárhlutfallið var 89%.

Meðal helstu eigna Stoða eru 99% hlutur í TM og 40% hlutur í drykkjarvöruframleiðandanum Refresco. Núverandi hluthafar eignuðust allt hlutafé í Stoðum við nauðasamninga félagsins í júní 2009. Stærstu eigendur eru Glitnir, Landsbankinn og Arion banki.