Stoðir hf. hafa bæst í hluthafahóp Landeldis hf. sem stefnir á um 32.500 tonna ársframleiðslu í nýrri landeldisstöð sem er að rísa í Þorlákshöfn. Núverandi umhverfismat leyfir Landeldi að ala á bilinu 5-6 þúsund tonn á ári og leyfisferli er hafið til að stækka eldið enn frekar upp í 20.000 tonna framleiðslu á ári.

Landeldi stefnir á að vera með þeim fyrstu sem framleiða lax á landi í stórum stíl í heiminum. Áframeldið byrjar á næsta ári og árið 2023 stefnir fyrirtæki á nokkurra þúsund tonna framleiðslu undir vörumerkinu Deep Atlantic Salmon.

Haustið 2020 keypti Landeldi seiðastöð við Hveragerði og því er félagið komið vel á veg með seiðaeldið.

„Við eigum nóg af seiðum til að flytja í áframeldið í Þorlákshöfn á komandi ári. Öll hrognin eru keypt af Stofnfiski í Vogum og höfum við átt farsælt samstarf í um eitt ár,” segir Halldór Ólafur Halldórsson, stjórnarformaður Landeldis.

„Fjármögnun hefur gengið vel frá upphafi verkefnisins. Samtals höfum við aukið hlutafé fyrir um 2 milljarða króna og hefur fjármagnið komið frá Íslendingum. Stoðir hf. hafa tekið myndarlega þátt í síðustu hlutafjáraukningu og eiga í dag um 32,9% í Landeldi. Stofnendur og starfsmenn hafa einnig lagt félaginu til mikið fjármagn og eiga í dag um 52% í félaginu. Verkefnið mun kosta rúma 15 milljarða króna og þarfnast því frekari fjármagns á komandi árum. Á næsta ári stefnir félagið á að sækja nýtt hlutafé fyrir aðra 2 milljarða króna,“ segir Halldór Ólafur.