Í október 2011 voru stöðugildi í Stjórnarráðinu 526 talsins en þeim fækkaði næstu ár og árið 2015 voru þau 481. Eftir það fjölgaði þeim aftur, árið 2021 voru stöðugildi orðin 637 og hafði þeim því fjölgað um 156 eða 32,4% frá árinu 2015. Þetta kom fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, á dögunum.

Ráðuneytin hafa tekið nokkrum breytingum á tímabilinu. Áherslur hafa breyst, verkefni færst á milli og ný ráðuneyti orðið til, svo fátt eitt sé nefnt.

Frá árinu 2017 hefur stöðugildum á aðalskrifstofum ráðuneytanna fjölgað jafnt og þétt eða alls um 28,1% samkvæmt upplýsingum Fjársýslu ríkisins, sem miða við fjölda í desember ár hvert. Árið 2017 voru stöðugildi 508, 534 árið 2018, 549 árið 2019, 582 árið 2020, 619 árið 2021 og 651 árið 2022.

Launakostnaður hefur jafnframt aukist, heildarlaunakostnaður á verðlagi dagsins í dag var 8.596 m.kr. árið 2017, 8.874 m.kr. árið 2018, 9.403 m.kr. árið 2019, 10.316 m.kr árið 2020 og 10.634 m.kr. árið 2021. Um er að ræða hækkun um ríflega tvo milljarða, alls 23,7%.

Nánar er fjallað um vöxt Stjórnarráðsins í Viðskiptablaðinu sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.