Kauphöllin hefur ákveðið að stöðva tímabundið pörun með hlutabréf Marel. Ekki liggur fyrir hvaða ástæða liggur þar að baki. Á sama tíma stöðvaði Kauphöllin jafnframt viðskipti með hlutdeildarskírteini Landsbréfa í Marel vegna viðskipta með hlutabréfin.

Fram kemur í tilkynningu frá Kauphöllinni að tilkynning sé væntanleg frá útgefanda, þ.e. Marel.