Bogi Óskar Pálsson, einn aðaleiganda eignarhaldsfélagsins Stofn ehf, fyrrverandi forstjóri Toyota og stjórnamaður í Exista, keypti í dag hlut í Exixta að verðmæti 4,8 milljarða króna. Bogi keypti 178.000 hluti á genginu 27. Eftir kaupin eiga Stofn og tengdir aðilar 185.656.147 hluti í Exista.