Nýstofnaða kvikmyndaframleiðslufyrirtækið ACT4 lauk í síðasta mánuði fjármögnun frá hópi innlendra og erlendra fjárfesta. Í tilkynningu er fjármögnunin sögð tryggja félaginu rekstrargrundvöll til næstu ára og verður nýtt til að þróa og fjármagna framleiðslu á vönduðu íslensku sjónvarpsefni fyrir alþjóðamarkað. Fjárhæðin er trúnaðarmál að svo stöddu, samkvæmt upplýsingum frá félaginu.

Að félaginu ACT4 standa fjórir íslenskir kvikmyndagerðarmenn, þeir Ólafur Darri Ólafsson, Hörður Rúnarsson, Jónas Margeir Ingólfsson og Birkir Blær Ingólfsson. Variety sagði fyrst frá fjármögnun félagsins.

„Mér er sönn ánægja að tilkynna um stofnun og fjármögnun ACT4. Við ætlum okkur að framleiða vandað íslenskt sjónvarpsefni til sýningar hér og erlendis,“ segir Ólafur Darri.

„Okkur er mjög umhugað að vanda til verka, leitast við að ná fram gæðum og fagmennsku, bæði á skjánum og innan þeirra verkefna sem við tökum að okkur. Og svona á persónulegri nótum þá hlakka ég til að nýta þetta tækifæri til að styrkja tengslin sem ég hef myndað í störfum mínum á síðustu árum við magnaða listamenn og vonandi lokka þá til samstarfs hér á Íslandi.“

ACT4 segir að mörg spennandi verkefni séu í burðarliðnum sem kynnt verða á næstu vikum.

„Það er mér mikil gleði að tilkynna um fjármögnun ACT4. Að fá alþjóðlegan hóp fjárfesta til liðs við félagið er fyrir mér sönnun þess að árangur íslenskrar kvikmyndagerðar á undanförnum árum, sem og 35% endurgreiðsla sem stjórnvöld kynntu á þessu ári, hafa skapað umhverfi þar sem kvikmyndaiðnaðurinn mun vaxa og dafna sem öflug útflutningsgrein,“ segir Jónas Margeir.

Um stofnendurna:

Ólafur Darri Ólafsson leikari hefur komið að handritaskrifum og framleiðslu ýmissa verka í gegnum tíðina en mun héðan í frá vinna undir merkjum ACT4. Darri hefur komið víða við og unnið með sumum af þekktustu kvikmyndaleikstjórum samtímans á borð við Steven Spielberg, Ben Stiller og Scott Frank. Meðal verka sem hann hefur leikið í eru: The Secret Life of Walter Mitty, True Detective, The BFG, Ófærð og Ráðherrann. Hjá ACT4 verður Ólafur Darri framleiðandi og höfundur.

Hörður Rúnarsson er framleiðandi og höfundur hjá ACT4. Hann hefur reynslu af fjármögnun íslenskra kvikmyndaverkefna á erlendri grundu. Sem verðlaunaður framleiðandi hefur hann komið að verkefnum á borð við: Svo lengi sem við lifum, Svörtu sandar, Vitjanir, Mannasiðir og Venjulegt fólk.

Jónas Margeir Ingólfsson, höfundur og lögfræðingur, er framkvæmdastjóri ACT4. Á undanförnum árum hefur Jónas Margeir starfað sem lögfræðingur og ráðgjafi í mörgum af stærri kvikmyndaverkefnum landsins. Hann starfar einnig sem handritahöfundur og hefur unnið að verkefnum á borð við Ráðherrann, Ísalög og Stellu Blómkvist 2.

Birkir Blær Ingólfsson er höfundur og þekktur fyrir sjónvarpsseríur á borð við Ráðherrann og Ísalög. Hann hlaut Íslensku Barnabókaverðlaunin árið 2018 fyrir söguna Stormsker - Fólkið sem fangaði vindinn. Hann verður þróunarstjóri ACT4.

Lögmannsstofan LMG veitti ACT4 ráðgjöf í fjármögnunarferlinu.