Landsbréf hf. í samstarfi við SA Framtak GP ehf. hafa lokið 4 milljarða króna fjármögnun á Brunni vaxtarsjóði slhf. Sjóðnum, sem rekinn verður í formi samlagshlutafélags, er ætlað að fjárfesta í íslenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Hluthafar í sjóðnum eru Landsbankinn, 7 lífeyrissjóðir, nokkrir einkafjárfestar, auk SA Framtaks GP sem er jafnframt ábyrgðaraðili samlagshlutafélagsins. Landsbréf munu annast rekstur sjóðsins í samstarfi við SA Framtak GP. Sjóðstjórar sjóðsins eru þeir Helgi Júlíusson frá Landsbréfum ásamt Sigurði Arnljótssyni og Árna Blöndal frá SA Framtaki GP.

Sjóðurinn mun á næstu 3-5 árum fjárfesta í íslenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum og lögð verður áhersla á gjaldeyrisskapandi fyrirtæki sem hafa burði til þess að vaxa og auka tekjur sínar hratt án þess að kostnaður hækki að sama skapi. Þær atvinnugreinar sem einkum verður horft til eru: hugbúnaður, veflausnir, afþreyingariðnaður, hátækni, líftækni, orkuiðnaður, sjávarútvegstækni og matvælaframleiðsla.

Áhersla verður lögð á að fyrirtækin búi yfir samkeppnisforskoti í formi þekkingar, einkaleyfis eða viðskiptahugmyndar og að frumkvöðlateymið sé framúrskarandi á sínu sviði. Áætlað er sjóðurinn muni fjárfesta í 10-15 fyrirtækjum og að hver fjárfesting verði á bilinu 100 - 500 m. kr. Gert er ráð fyrir að sjóðurinn verði í flestum tilvikum leiðandi fjárfestir og að fulltrúar hans muni setjast í stjórn þeirra fyrirtækja sem fjárfest verður í.

„Við sjáum mörg tækifæri í íslenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum . Það á m.a. rætur að rekja til þess að hér er mikið framboð af spennandi fjárfestingakostum en lítið hefur verið um fjármagn,“ segir Árni Blöndal hjá SA Framtaki GP.

„Stofnun sjóðsins er ánægjuleg vísbending um aukinn áhuga fjárfesta á nýsköpun og þeim tækifærum sem felast í því að auka fjölbreytni í íslensku atvinnulífi. Við þökkum hluthöfum Brunns það traust sem þeir sýna okkur með áskriftarloforðum í sjóðinn. Mikill undirbúningur liggur að baki verkefninu og við höfum átt gott samstarf við starfsmenn SA Framtaks um stofnun sjóðsins,“ segir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa.