Virðing og ALM fjármálaráðgjöf ásamt Kjölfestu GP hafa stofnað fjárfestingafélagið Kjölfestu slhf. Eigendur félagsins eru 14 fagfjárfestar, þar af 12 lífeyrissjóðir. Samkvæmt tilkynningu frá félaginu er tilgangur þess að fjárfesta í millistórum og smærri fyrirtækjum á Íslandi og styðja þá um leið við sókn og framþróun íslensks atvinnulífs.

Rekstraraðilar félagsins eru Virðing hf. og ALM Fjármálaráðgjöf hf. en lögð er áhersla á að fjárfesta í fyrirtækjum með gott sjóðstreymi, rekstrarsögu og þekkt viðskiptalíkan. Kolbrún Jónsdóttir viðskiptafræðingur mun gegna starfi framkvæmdastjóra hjá félaginu. Áætlað er að fyrstu fjárfestingar sjóðsins verði kynntar með haustinu.