Domino's
Domino's
© None (None)
Hömlur ehf., dótturfélag Landsbankans hf., hefur selt fyrirtækið Pizza-pizza ehf. til hóps fjárfesta undir forystu Birgis Þórs Bieltvedt sem átti hagstæðasta tilboðið í opnu söluferli. Pizza-pizza ehf. er umboðsaðili Domino's Pizza International á Íslandi. Söluverð alls hlutafjárins er 210 milljónir króna en að auki nema vaxtaberandi skuldir 350 milljónum króna. Salan og nýir kaupendur hafa verið samþykktir af Domino‘s Pizza International.

Tindar verðbréf veitti nýjum eigendum Pizza-pizza ehf. ráðgjöf í söluferlinu.

Salan er með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Pizza-pizza ehf. hefur farið í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu hjá Landsbankanum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Landsbankans.

Tuttugu tilboð

Söluferlið var opið öllum áhugasömum fjárfestum sem stóðust hæfismat og gátu sýnt fram á fjárfestingargetu að lágmarki 300 milljónir króna. Söluferlið hófst 12.maí 2011. Margir sýndu fyrirtækinu áhuga og skiluðu 20 aðilar inn óskuldbindandi tilboði. Sex þeirra fengu aðgang að gagnaherbergi til að afla sér frekari upplýsinga um félagið og skiluðu allir bindandi tilboði.

Stofnandi Domino's á Íslandi

Birgir Bieltvedt, forsvarsmaður nýrra eigenda Pizza-pizza ehf., stofnaði félagið 1993 og kom að rekstri þess fram til ársins 2005. Núna, sex árum seinna, kemur hann aftur að félaginu og kveðst „vera spenntur fyrir því að takast að nýju á við þetta verkefni og innleiða ýmsar nýjungar sem koma til með að styrkja félagið enn frekar og gera Domino's Pizza að leiðandi vörumerki á sínu sviði með gæði, þjónustu og stöðugleika að leiðarljósi."