Mark Zuckerberg
Mark Zuckerberg
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)

Mark Zuckerberg, forstjóri og einn stofnenda samfélagsmiðilsins Facebook, eyddi jólunum í Víetnam með unnustu sinni, Pricillu Chan. Samkvæmt fregnum AP-fréttastofunnar fékk parið vegabréfsáritun til hálfs mánaðar 16. desember síðastliðinn, þau komið til Víetnam daginn fyrir Þorláksmessu og varið frítíma sínum, jafnt Aðfangadegi sem jóladegi í að skoða sig um í Hanoi-borg.

Þetta ku vart vera í frásögu færandi nema fyrir þær sakir að yfirvöld hafa bannað landsmönnum að nota Facebook, í raun lokað fyrir aðgang að síðunni. Ungt fólk hefur hins vegar fundið hjáleiðir og nýta sér hana, að sögn AP.