Stofnandi MK One verslunarkeðjunnar, Mark Brafman, hefur keypt um 100 verslanir smásölukeðjunnar.

MK One fór í gjaldþrotameðferð í síðustu viku eins og fjallað hefur verið um .

Fyrirtæki Brafman, Jet Star Retail, keypti búðirnar af Deloitte fyrir óuppgefna upphæð, en Deloitte er skiptaráðandi MK One.

Þetta kemur fram í frétt Telegraph.