Thom­as Gil­bert eldri, stofnandi vogunarsjóðsins Wainscott Capital Partners Fund, fannst látinn í íbúð sinni á Manhattan í gær. Hann hafði verið skotinn í höfuðið. Eiginkona hans kom að honum látnum og lét lögreglu vita.

Wall Street Journal segir að talið sé að Gilbert eldri og sonur hans, Gilbert yngri., hafi rifist stuttu áður en hleypt var af. Gilbert var handtekinn í gærkvöldi og er í haldi lögreglu.

Gilbert eldri var sjötugur að aldri. Vogunarsjóður hans, sem var stofnaður árið 2011, fjárfesti aðallega í líf­tækni og heilbrigðismálum og eru eignir hans metnar á 200 milljónir dala.