Jack Dorsey hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Twitter en hann var skipaður í starfið tímabundið eftir að forveri hans í starfi, Dick Costolo, hætti í júlí sl.

Dorsey er annar af tveimur stofnendum fyrirtækisins en hann er einnig framkvæmdastjóri Square, en hann ætlar sér að vera framkvæmdastjóri beggja fyrirtækja á sama tíma.