Þeim fjölgar í sífellu smálánafyrirtækjunum, sem bjóða íslenskum almenningi upp á lán til skamms tíma á háum ársvöxtum. Í janúarlok var eitt slíkt félag stofnað en það hefur þó ekki enn hafið starfsemi.

Félagið heitir Smálán ehf. og tilgangur þess er, eins og nafnið gefur til kynna, útlánastarfsemi meðal annars. Það sem vekur athygli er að framkvæmdastjóri þess og eini stjórnarmaður er Leifur Alexander Haraldsson, sem einnig er eigandi smálánafyrirtækisins Kredia.

Leifur A. Haraldsson
Leifur A. Haraldsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)