Stjórn Sparisjóðs Mýrasýslu hefur ákveðið að leggja til við fund stofnfjáreigenda að stofnfé sjóðsins verði aukið um 2 milljarða króna. Stjórn sjóðsins hefur jafnframt ákveðið að leggja til að Borgarbyggð falli frá rétti sínum til þess að skrá sig fyrir nýju stofnfé en verði áfram í hópi stofnfjáreigenda með um 20% þess eftir aukningu. Kaupþing banki hefur skuldbundið sig til þess að skrá sig fyrir 1.750 milljónum og aðrir fjárfestar fyrir 250 milljónum. Kaupþing hefur jafnframt skuldbundið sig til þess að útvega SPM kaupanda að 8,73% eignarhlut Sparisjóðs Mýrasýslu í Icebank hf., að því er segir í fréttatilkynningu.

Eftir stofnfjáraukninguna verður hlutur Kaupþings í stofnfé SPM 70%, hlutur Borgarbyggðar 20% og annarra fjárfesta 10%.

Áætlað er að fundur stofnfjáreigenda, þar sem tillaga stjórnar verður lögð fram, verði  föstudaginn 15. ágúst.

„Rekstur SPM hefur verið erfiður á fyrri hluta ársins vegna slæms árferðis á fjármálamörkuðum.  Með nýju stofnfé verður fjárhagslegur grundvöllur sjóðsins traustur og hann mun þjóna viðskiptavinum sínum vel hér eftir sem hingað til,” segir Gísli Kjartansson, sparisjóðsstjóri, í fréttatilkynningunni.

„Stjórn sjóðsins fagnar því að fjárhagslegur grundvöllur sjóðsins sé  treystur og að Kaupþing hafi ákveðið að taka þátt í stofnfjáraukningunni. Stjórnin væntir góðs af samstarfinu við bankann,” segir Sigurður Már Einarsson, formaður stjórnar sparisjóðsins, í fréttatilkynningunni.

Stofnfjáraukningin er háð samþykki lánveitenda Sparisjóðs Mýrasýslu, Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins.