Stofnfiskur hlýtur verðlaun bresku fiskeldissamtakana sem birgi ársins. Verðlaunin heita Aquaculture Awards og þar eru veittar viðukenningar í ýmsum flokkum til þeirra fyrirtækja sem skara fram úr á sínu sviði í fiskeldi. Verðlaunaafhendingin var rafræn í ár vegna covid-19.

Frá þessu er greint í tilkynningu.

Í dag er Stofnfiskur, sem er eigu Benchmark Genetics,  einn stærsti framleiðandi á laxahrognum í heiminum. Vegna legu landsins og heilbrigði laxastofns Stofnfisks síðustu áratugi er auðvelt að flytja lifandi laxahrogn út um allan heim eða alls til 22 landa.

Vorið 2019 var lokað fyrir allan útflutning á laxahrognum frá Noregi til Skotlands vegna þess að norskur laxaiðnaður missti vottun sína til útflutnings. Stofnfiskur hefur smám saman byggt upp næga framleiðslugetu til að framleiða allt að 200 milljón hrogn sem duga til framleiða um 500.000 tonn af laxi.

Jónas Jónasson framkvæmdarstjóra Stofnfisk segir:  „Við höfum um árabil selt hrogn til Skotlands og núna verðum við að auka enn frekar framleiðsluna svo við eigum nóg til að sinna skoska markaðinum. Þetta hefur ekki verið auðvelt á tímum Covid vegna óreglulegra flugsamganga.  Ég vil nota tækifærið og þakka öllu starfsfólki Stofnfisks fyrir frábæran árangur og um leið hamingjuóskir til þeirra allra. Við erum stolt og þakklát fyrir þessa viðurkenningu á okkar starfi.“