Lög um heimild til handa samgönguráðherra um stofnun opinbers hlutafélags um rekstur Keflavíkurflugvallar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar voru samþykkt á Alþingi á síðasta starfsdegi fyrir frestun. Gert er ráð fyrir því að hlutafélagið taki við rekstri vallarins og FLE frá ársbyrjun 2009.

Þetta kemur fram á vef Samgönguráðuneytisins.

Þá kemur fram að tíminn fram að því verður notaður til undirbúnings og stofnunar hlutafélagsins. Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum og fimm varamönnum.

Í lögunum segir um tilgang opinbera hlutafélagsins að hann sé að annast rekstur, viðhald og uppbyggingu Keflavíkurflugvallar sem borgaralegs alþjóðaflugvallar auk hagnýtingar flugvallarsvæðisins í þágu öryggis- og varnartengdrar starfsemi og þjóðlegra skuldbindinga ríkisins.

Einnig skuli félagið annast rekstur, viðhald og uppbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar ásamt verslunum, starfsemi í beinum tengslum við flugrekstur og aðra starfsemi sem sé nauðsynleg innan haftasvæðis flugverndar.

Þá kemur fram í lögunum að samgönguráðherra sé heimilt að gera samninga við félagið um uppbyggingu og rekstur flugvallarsvæðisins og FLE til að tryggja að þjónusta sé í samræmi við markmið stjórnvalda hverju sinni.

Einnig er samgönguráðherra heimilt að fela félaginu að fara með réttindi íslenska ríkisins og annast skuldbindingar þess samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum og samningum við önnur ríki, enda samræmist slíkt tilgangi félagsins.

Félaginu er skylt að fara að fyrirmælum hér að lútandi, sem og öðrum fyrirmælum er varða framkvæmd og efndir slíkra samninga og annarra þjóðréttarlegra skuldbindinga. Utanríkisráðherra er einnig heimilt að gera samninga við félagið um not þess af öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og mannvirkjum í eigu Atlantshafsbandalagsins.

Um skipulagsmál segir í lögunum að samgönguráðherra skipi sex menn í skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar og skuli þrír skipaðir samkvæmt tilnefningu sveitarfélaganna Garðs, Reykjanesbæjar og Sandgerðis. Einn skuli skipaður samkvæmt tilnefningu umhverfisráðherra og tveir án tilnefningar og skuli annar þeirra gegna formennsku.

Auk laganna um opinbert hlutafélag um Keflavíkurflugvöll voru samþykkt á Alþingi í vor má nefna meðal annars ný lög um samgönguáætlun, þingsályktunartillaga um fjögurra ára samgönguáætlun, breyting á lögum um áhafnir farþegaskipa, breyting á umferðarlögum og lög um Landeyjahöfn.