Í undirbúningi er stofnun sprotafyrirtækis til að vinna að hugmyndum um sjávarfjallavirkjun í innfjörðum Breiðafjarðar. Á næstu dögum verður stofnað sprotafyrirtæki með aðkomu Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Orkubús Vestfjarða og Vegagerðarinnar til þess að vinna að frekari þróun þessarar virkjunarhugmyndar. Vinnuheiti fyrirtækisins er Vesturorka-WesTide.

Í tilkynningu segir að Bjarni M. Jónsson við Háskólasetur Vestfjarða á Ísafirði hefur undanfarin misseri unnið að rannsóknum og þróun á sviði virkjana sjávarfalla en leiðbeinandi verkefnisins er prófessor Þorsteinn I. Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Gæti gefið 75-80 MW

Í meistaraverkefninu kannaði Bjarni meðal annars möguleika virkjana sjávarfalla í nokkrum innfjörðum Breiðafjarðar og gerði ýtarlega mælingu á magni og dýpt sjávar í þessum fjörðum með það í huga að meta aflið sem virkja mætti samhliða þverbrúun fjarðarins. Hugmyndin er að brúargerð og virkjun verði sameinuð í eina framkvæmd.

Afl sjávarfalla hefur verið reiknað fyrir nær alla innfirði og kom í ljós að hámarksafl í Dýrafirði yrði 10 MW, Mjóafirði 14 MW, Kolgrafarfirði 50MW og Gilsfirði 100 MW. Þverbrú í mynni Þorskafjarðar og aðliggjandi fjörðum gæfi hámarksafl 180 MW samkvæmt útreikningum Bjarna. Raunafl virkjunar á útfalli gæti orðið á bilinu 75-80 MW. Þarna væri um að ræða afl sem er lotubundið og útreiknanlegt og nákvæmt langt fram í tímann.