Í viðtali á Stöð 2 í gær og í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag heldur Agnes Bragadóttir því fram að skuldir Stoða (áður FL Group), sem greiða þurfi fyrir áramót, nemi 130 milljörðum króna.

„Hið rétta er að afborganir af lánum Stoða sem koma til gjalddaga síðustu þrjá mánuði ársins 2008 nema alls 3,8 milljörðum króna (3.796 milljónir m.v. 26.09.08). Hér skeikar rúmlega 126 milljörðum króna,“ segir í tilkynningu sem Stoðir hafa sent fjölmiðlum þar sem gerðar eru athugasemdir við það sem félagið kallar rangfærslur Agnesar.

„Á óvissutímum í efnahagslífi er mikilvægt að rétt sé farið með upplýsingar,“ segir í tilkynningunni.

„Reyndur blaðamaður á borð við Agnesi Bragadóttur hefði auðveldlega getað fengið réttar upplýsingar um skuldir Stoða, t.d. með því að skoða síðasta árshlutareikning Stoða á vef félagsins eða með því að hafa samband við Stoðir.“