Hagnaður varð af rekstri fastfélagsins Stoða á árinu 2004 að fjárhæð 2.705 milljónum króna en árið áður var hagnaður að fjárhæð 55 milljónum króna. Samkvæmt efnahagsreikningi námu heildareignir félagsins 45,45 milljörðum króna í árslok 2004 en námu 35 milljörðum króna í árslok 2003. Eigið fé félagsins í árslok 2004 nam níu milljörðum króna en þar af nam hlutafé tveimur milljörðum króna.