Sunna Dóra Einarsdóttir
Sunna Dóra Einarsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)

  • Sunna Dóra Einarsdóttir er nýr sviðsstjóri Viðskiptalausna Deloitte

Þann 1. september næstkomandi eiga sér stað nokkrar breytingar á stjórnendateymi Deloitte, en þá taka nýir sviðsstjórar við hjá Deloitte til að styðja við markaðssókn og frekari tæknivæðingu.

Jónas Gestur Jónasson
Jónas Gestur Jónasson
© Aðsend mynd (AÐSEND)

  • Jónas Gestur Jónasson er nýr stjórnarformaður Deloitte

Sunna Dóra Einarsdóttir mun taka við hlutverki sviðsstjóra Viðskiptalausna af Jónasi Gesti Jónassyni , sem mun taka við sem stjórnarformaður Deloitte. Sunna Dóra er einnig fjármálastjóri Deloitte og hefur undanfarin ár starfað sem meðeigandi innan Viðskiptalausna.

Haraldur Birgisson
Haraldur Birgisson
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Þá mun Haraldur Ingi Birgisson taka við sem sviðsstjóri Skatta- og lögfræðiráðgjafar af Bjarna Þór Bjarnasyni , sem mun stýra lykil þjónustulínum á sviðinu og leiða stærri verkefni fyrir viðskiptavini Deloitte. Haraldur er einnig forstöðumaður viðskipta- og markaðstengsla og hefur jafnframt verið meðeigandi innan Skatta- og lögfræðiráðgjafar.

Bjarni Þór Bjarnason
Bjarni Þór Bjarnason
© Aðsend mynd (AÐSEND)

  • Bjarni Þór Bjarnason heldur áfram innan Skatta- og lögfræðiráðgjafar Deloitte þar sem hann var áður sviðsstjóri en þar mun hann nú stýra lykilþjónustulínum og leiða stærri verkefni fyrir viðskipti

Jón Eyfjörð Friðriksson
Jón Eyfjörð Friðriksson
© Aðsend mynd (AÐSEND)

  • Jón Eyfjörð Friðriksson er nýr sviðsstjóri Upplýsingatækniráðgjafar Deloitte

Að auki mun Jón Eyfjörð Friðriksson taka við hlutverki sviðsstjóra Upplýsingatækniráðgjafar af Björgvin Inga Ólafssyni , sem mun leiða teymi stefnumótunar og rekstrarráðgjafar innan Fjármálaráðgjafar Deloitte. Jón Eyfjörð hefur starfað sem meðeigandi á sviðinu frá árinu 2016.

Björgvin Ingi Ólafsson
Björgvin Ingi Ólafsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)

  • Björgvin Ingi Ólafsson leiðir nú stefnumótun og rekstrarráðgjöf innan Fjármálaráðgjafar Deloitte

„Ég er afskaplega ánægður að fá Sunnu, Harald og Jón í þessi hlutverk, en þau hafa öll mikla innsýn í starfsemi Deloitte og skýra sýn á það hvernig við tökum nýja 4ja ára stefnu félagsins áfram. Sú stefna snertir alla anga félagsins en markast öðru fremur af enn frekari markaðssókn og tæknivæðingu,“ segir Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte.

„Skarpari áherslur innan Fjármálaráðgjafar og Upplýsingatækniráðgjafar falla jafnframt mjög vel að því. Jónas, Bjarni og Björgvin hafa unnið mikið og gott starf á undanförnum árum og ég hlakka til að vinna áfram með þeim að því að þjónusta okkar öflugu viðskiptavini í nýjum hlutverkum þeirra innan Deloitte.“