Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, telur ekki mögulegt fyrir Íslendinga að taka upp norska krónu.

Þetta kemur fram í frétt RÚV.

Stoltenberg sagði á blaðamannafundi að hugmyndir um norska krónu á Íslandi bæru vott um sterk tengsl Íslendinga við Noreg. Hann kvaðst ánægður með stuðning Norðmanna við Ísland og að Noregur ynni að því með öðrum Norðurlandaþjóðum að útvega Íslandi lán.