Síminn er með langflesta internet-notendur á Íslandi í viðskiptum hjá sér. Fyrirtækið er með 54,5 prósent markaðshlutdeild þeirra fyrirtækja sem bjóða upp á ADSL-internetþjónustu og viðskiptavinir Símans á þeim markaði eru alls 53.436 talsins. Þeim hefur fjölgað um tæplega þrjú þúsund frá því um mitt ár í fyrra.
Þetta kemur fram í nýrri tölfræðiskýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar sem birt var í dag. Í skýrslunni er að finna tölur um stöðu á fjarskiptamörkuðum í lok júní síðastliðins.
Stöðnun virðist ríkja á internet-markaðinum því að sáralitlar sveiflur eru á markaðshlutdeild fyrirtækja sem þar starfa á milli ára.
Þrjú þeirra: Síminn, Vodafone og Tal eru með 97 prósent markaðshlutdeild en alls voru áskrifendur ADSL-internetþjónustu 98.099 talsins á Íslandi í lok júní. Vodafone tapar um þúsund viðskiptavinum á milli ára á meðan að Tal bætir svipuðum fjölda við sinn hóp.
ADSL-internet áskrifendur 2008 til 2009
Fjöldi viðskiptavina Markaðshlutdeild Fyrirtæki
júní 08 júní 09 júní 08 júní09
Síminn 50.750 53.436 53,5% 54,5%
Vodafone 28.244 27.336 30,8% 29,8%
Tal 13.184 14.375 13,9% 14,7%
Aðrir 2.638 2.952 2,8% 3,0%
Samtals 94.816 98.099 100% 100%