Alþjóðabankinn (e.World Bank) tilkynnti nú í morgun um nýja útgáfu krónubréfs til eins árs að nafnvirði 14 ma.kr. og bera bréfin 11,5% vexti. Þetta kemur fram í morgunkorni Glitnis.

„Er þetta önnur útgáfa febrúarmánaðar en áður voru gefnir út 2 ma. kr í byrjun mánaðar. Samtals hafa 8 ma.kr. fallið á gjalddaga í mánuðinum að viðbættum vöxtum. Útgáfa umfram innlausn í þessum mánuði nemur því 8 mö.kr. Í mars falla krónubréf að nafnvirði 27 ma.kr á gjalddaga og búast má við að töluverðum hluta gjalddaganna verði mætt með nýjum útgáfum enda hefur komið í ljós að á meðan vaxtarmunurinn er jafnmikill og raun ber vitni hefur áhugi fjárfesta á nýjum útgáfum krónubréfa viðhaldist.

Til að mynda var stórum gjalddögum í janúar að fullu mætt með nýjum útgáfum. Núna eru útistandandi krónubréf að fjárhæð ríflega 396 ma.kr., sem er svipuð staða og var um mitt síðasta sumar," segir í morgunkorni Glitnis.