Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Solid Clouds er að fara með sinn annan leik, Starborne Frontiers í lokaða Beta prófun. „Næsti stóri áfangi Solid Clouds er þegar leikurinn verður gefinn út,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins, sem er skráð á First North-markaðinn.

Solid Clouds segir að endurgjöf spilara og gögn um notendahegðun sem verða til í munu gera þeim kleift að auka viðveru og ánægju spilara í leiknum. Prófanirnar munu einnig hjálpa félaginu að stilla tekjukerfi leiksins svo að áætlanir þess um meðaltekjur af hverjum spilara náist.

Sjá einnig: Solid Clouds gefur út nýjan Starborne leik

Í byrjun þessa árs fór fyrsta útgáfa af Frontiers, sem er annar leikurinn sem Solid Clouds gefur út, í prófun hjá tvö þúsund spilurum í Asíu.

Stefán Gunnarsson, forstjóri Solid Clouds:

„Við erum á góðri leið með að þróa leikinn Frontiers en hann er á leiðinni að verða einn flottasti geimleikur sem gefinn hefur verið út fyrir snjalltæki. Leikurinn hefur fengið mjög jákvæð viðbrögð hjá þeim spilurum sem hafa prófað hann. Þessum áfanga hefur verið náð með vel útfærðri áætlun og öflugu teymi.“