Göran Holgerson hefur tilkynnt stjórn norska tryggingafélagsiins Storebrand - sem að er að hluta til í eigu Kaupþings og Exista - að hann muni hætta sem framkvæmdastjóri SPP, einu dótturfélaga Storebrand.

Hann mun þó starfa þangað til nýr framkvæmdastjóri hefur tekið við en samkvæmt tilkynningu frá félaginu er þegar byrjað að leita að nýjum manni.

Holgerson hefur starfað hjá SPP og Handelsbanken Liv frá árinu 1995 og verið framkvæmdastjóri hjá félaginu frá 2003. Þá hefur hann setið í stjórnunarteymi Storebrand frá því í desember 2007.