Á Vegvísi Landsbankans kemur fram að Norska tryggingafélagið Storebrand sem m.a. er í eigu Kaupþings [ KAUP ]og Exista [ EXISTA ] hafi fengið grænt ljós frá norska fjármálaráðuneytinu vegna væntanlegrar yfirtöku á SPP, líftryggingararmi sænska Handelsbanken. Fyrr í mánuðinum fékk Storebrand leyfi sænska fjármálaeftirlitsins og í lok október samþykkti hluthafafundur Storebrand yfirtökuna og þar með er fátt sem getur komið í veg fyrir hana.