Á liðnum misserum hefur mikið verið talað um þróun og framtíð vinnu, meðal annars um áhrif tækninnar í atvinnulífinu, hvernig sum störf leggjast af og ný störf verða til. Þá liggur fyrir að efnahagslegt vægi verkefna fer vaxandi í atvinnulífinu.

Vegna þessa stendur Háskólinn í Reykjavík fyrir opnum sem hefst klukkan 12. Á fundinum verður fjallað almennt um þróunina og framtíð vinnu – á grundvelli alþjóðlegra rannsókna sem Ísland tekur þátt í. Einnig verður sjónum beint sérstaklega að áhrifum þessa á framtíð verkefnastjórnunar, frá sjónarhóli hins öfluga breska verkefnastjórnunarfélags APM .

Katrín Ólafsdóttir, dósent við viðskiptadeild, fjallar um framtíð vinnu og fara yfir hvað samtímarannsóknir segja um þróunina, áhrif gervigreindar og annarra þátta í umhverfinu á framtíð vinnumarkað og áhrif þessa á þjóðfélagið. Alistair Godbold , frá breska verkefnastjórnunarfélaginu APM , um fara yfir úttekt sem APM lét nýverið gera á framtíð verkefnastjórnunar.

Helgi Þór Ingason og Haukur Ingi Jónasson munu stýra fundinum og stýra stuttum umræðum í síðasta hluta fundarins og svara spurningum sem fundargestir geta borið fram skriflega á meðan á kynningum framsögumanna stendur.

ZOOM fundarhlekkur:

https://eu01web.zoom.us/j/64027843220