Hlutabréf í Nintendo lækkuðu eilítið eða um 4,42% í dag eftir gríðarlegar hækkanir undanfarna daga. Síðan Pokemon Go leikurinn kom út á miðvikudag í síðustu viku hefur hlutafé fyrirtækisins hækkað um 51,7%, og náð um 30 milljörðum Bandaríkjadala.

Sérstök Pókemon leikjatölva

Leikurinn byggir á að veiða Pokémon karaktera í umhverfinu, oft í kringum styttur eða aðra merka staði, en slíkt hefur jafnvel gerst í heimahúsum, sem valdið hafa sumum vandræðum, þegar ókunnugir hafa komið að húsinu.

Fyrirtækið á 33% eignarhlut í Pokémon fyrirtækinu sem á vörumerkið. Jafnframt á fyrirtækið hlut í Niantic, sem þróaði leikinn, en það er einnig í eigu Google. Stórfyrirtækið á bakvið leitarvélina græðir jafnframt á leiknum í gegnum söluvef sinn, en það gerir einnig Apple fyrirtækið.

Niantic vinnur með kortagerð og raunveruleikatækni, en leikurinn þykir sýna að það gangi upp að nota þessa tækni saman. Jafnframt hyggst Nintendo, sem lengst af hefur aðallega verið í leikjatölvum, að gefa út sérstakt tæki til að spila leikinn sem heitir Pokémon Go Plus.

Fyrirtækið hefur fært sig hægt út í snjallsímaleikjamarkaðinn, til að vernda leiktækjamarkað sinn, en nú stefnir það á að gefa út 4 nýja leiki fyrir lok mars á næsta ári.