Stórkaup, nýtt félag í eigu Haga, hefur hafið rekstur. Stórkaup er heildverslun sem þjónustar stórnotendur með aðföng en félagið á meðal annars að taka við hlutverki Rekstrarlands , sem var hluti af Olís. Skrifstofur og vöruhús Stórkaups eru í Skútuvogi 9.

Í fréttatilkynningu segir að leiðarljósin í rekstri Stórkaups séu hagkvæmni, nútímalegt þjónustustig og einfalt skipulag sölu og dreifingar. Helstu vöruflokkar fyrirtækisins eru ýmsar rekstrar-, hreinlætis- og heilbrigðisrekstrarvörur. Viðskiptavinir Stórkaups eru m.a. framleiðendur, sjávarútvegur, rekstraraðilar, veitingageirinn, hótel og heilbrigðisstofnanir.

„Við hjá Stórkaup hugsum svo sannarlega stórt enda eru okkar helstu viðskiptavinir stórnotendur. Þó svo að Stórkaup sé nýtt fyrirtæki þá byggir það á traustum grunni og mikilli þekkingu þar sem að fyrirtækið tekur að einhverju leiti við hlutverki Rekstrarlands sem var hluti af Olís,“ segir Árni Ingvarsson, rekstrarstjóri Stórkaups.

„Flestir starfsmenn Stórkaups eru fyrrum starfsmenn Olís og búa yfir áratuga reynslu í þjónustu við stórnotendur. Það er mjög mikilvægt fyrir Stórkaup að hafa svo reynslumikla starfsmenn í þjónustu við viðskiptavini.“

Árni segir að Stórkaup hafi lagt mikið kapp á að koma nýrri netverslun í loftið á sama tíma og reksturinn fer stað.

„Síðustu mánuði höfum við unnið að smíði á netversluninni sem er sérsniðin að þörfum stórnotenda og þar ættu fyrirtæki og stofnanir að finna allt sem þau þurfa fyrir daglegan rekstur sinn og geta framkvæmt pantanir á einfaldan og skilvirkan hátt,“ segir Árni.“