Streymisveita skemmtanarisans Walt Disney Company hefur sett í loftið tilboð sem gerir fólki kleift að kaupa mánaðaráskrift á aðeins 1,99 dali, en til samanburðar kostar áskriftin undir venjulegum kringumstæðum 8 dali á mánuði. Með þessu vill félagið örva nýáskriftir, en nokkuð hafði hægt á þeim undanfarið. Reuters greinir frá.

Tilboðið mun gilda frá og með deginum í dag og út vikuna. Síðasti dagur til þess að nýta sér það er því nk. sunnudagur. Tilboðið gildir fyrir bandaríska áskrifendur, sem og áskrifendur í „sumum öðrum löndum" að því er segir í tilkynningu frá Disney.

Eins og í tilfelli margra annarra streymisveita fór áskrifendum Disney+ mjög fjölgandi þegar samkomutakmarkanir vegna Covid-19 heimsfaraldursins voru hvað strangastar. Eftir því sem slakað hefur verið á hömlum hefur dregið úr fjölda nýáskrifta og vonast fyrirtækið því til að tilboðið virki sem olía á eftirspurnareldinn.