Storytel AB, móðurfélag Storytel á Íslandi, hefur keypt 70% hlut í stærstu bókaútgáfu landsins, Forlaginu. Seljandinn, bókmenntafélagið Mál og menning, mun áfram fara með 30% hlut í félaginu sem mun starfa áfram sem sjálfstætt bókaforlag, aðskilið frá streymisveitu Storytel á Íslandi.

Forlagið bætist þannig í hóp þriggja annarra norrænna útgáfufélaga í eigu Storytel AB, Norstedts Förlagsgrupp í Svíþjóð, People’s Press í Danmörku og Gummerus Publishers í Finnlandi.

Félagið var stofnað árið 2007 af Jóhanni Páli Valdimarssyni, Agli Erni Jóhannssyni og bókmenntafélagi Máls og menningar sem hefur farið með ráðandi hlut frá árinu 2017. Forlagið gefur árlega út um 150 titla, marga hverja eftir virtustu höfunda landsins.

„Við erum gríðarlega ánægð með þessa nýjustu viðbót við Storytel fjölskylduna og öflugt net útgáfufélaga okkar á norðurlöndunum. Forlagið sómir sér þar vel meðal virtra félaga á borð við Norstedts Förlagsgrupp, Gummerus Publishers og People’s Press. Við erum spennt að hefja samstarf með reynslumiklum útgefendum Forlagsins sem deila ástríðu okkar fyrir góðum sögum,“ segir Jonas Tellander, forstjóri og stofnandi Storytel, í fréttatilkynningu.

„Íslendingar eru mikil bókaþjóð og við erum sannfærð um að þetta muni reynast mikið gæfuspor fyrir íslenskan bókamarkað. Þekking Storytel á stafrænni þróun ásamt öflugri reynslu Forlagsins í bókaútgáfu mun stórauka aðgengi landsmanna að vönduðum bókmenntum og kaupin munu treysta sérstöðu beggja félaga enn frekar,“ segir Jonas.

Forlagið og Storytel á Íslandi munu starfa sjálfstætt áfram eftir kaupin og stefna Forlagsins verður áfram sú að efla íslenska útgáfu og stuðla að því að raddir íslenskra rithöfunda berist sem víðast.

„Forlagið byggir á aldargamalli hefð útgefenda sem hafa gert það að ævistarfi sínu að koma íslenskum bókmenntum á framfæri. Við erum afskaplega ánægð og hlökkum til samstarfsins með Storytel sem er kraftmikið nýsköpunarfyrirtæki á sviði stafrænnar útgáfu. Samstarfið mun opna margar dyr fyrir höfundum Forlagsins og færa okkur skrefi nær inn í framtíðina og nær nútíma lesendum og hlustendum,“ segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins.

„Kaupin munu styrkja rekstrargrunn Forlagsins og tryggja forystu í stafrænni þróun til framtíðar. Þetta skref rammar einnig vel inn framtíðarsýn félagsins sem snýr að því að gefa út bestu verk íslenskra bókmennta og gera þau aðgengileg öllum lesendum, hvaðan og hvernig sem þeir vilja njóta þeirra,“ segir Egill Örn.