Í ályktun Iðnþings, sem nú stendur yfir, segir að stöðugleika þurfi til að samkeppnis¬- og útflutningsgreinar þrífist. Hann er frumforsenda þess að unnt sé að byggja upp iðnað á Íslandi. "Það er óviðunandi og stórskaðlegt að hann raskist í hvert sinn sem hagvöxtur eykst. Hátt gengi krónunnar, óhóflegur vaxtamunur, sífelld útþensla í ríkisrekstrinum og mjög hátt raungengi um þessar mundir valda því að framleiðslu- og þjónustu¬fyrirtæki leggja upp laupana eða fara úr landi í stórum stíl," segir í ályktun Iðnþings

Þars egir ennfremur að áður fyrr tengdust hagvaxtarskeið jafnan auknum afla eða hækkandi afurðaverði en nú hin síðari ár stóriðju- og virkjanaframkvæmdum. Þótt orsakirnar séu nú aðrar eru afleiðingarnar þær sömu.

Nágrannaþjóðir okkar búa í haginn fyrir atvinnulíf sitt með stöðugum gjaldmiðli, aukinni áherslu á hátækniiðnað, menntun og rannsóknir. Haldbesta leiðin til að auka hér kaupmátt og velmegun í framtíðinni er að feta sömu slóð.

"Það er alls ekki sjálfgefið að hér vaxi upp kröftugur og þróttmikill iðnaður sem byggist á hátækni. Til þess þarf samstillt átak um efna¬hagslegan stöðugleika, gott menntakerfi, rannsókna- og þróunar¬starf og loks þarf að efla fjárfesta á borð við Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins svo þeir geti fjárfest í vænlegum sprota- og nýsköpunar¬fyrirtækjum með þolinmóðu fjármagni. Vissulega hefur mikið áunnist en við eigum að setja markið hátt og stefna að því að á hverju ári nái að minnsta kosti tvö hátæknifyrirtæki því marki að velta yfir einum milljarði króna," segir í ályktunni.