Búist er við að Strætó bs. kaupi um 85 til 90 nýja strætisvagna á næstu tíu árum. Reykjavíkurborg hefur fyrir hönd Strætó bs. óskað eftir áhugasömum aðilum til þess að taka þátt í samningskaupum vegna endurnýjunar strætisvagna. Rammasamningur verður gerður við einn til þrjá aðila til allt að sex ára, samkvæmt útboðsauglýsingu. Möguleiki er á framlengingu til allt að þriggja ára.

Áætluð endurnýjunarþörf á næstu tíu árum er um 85 til 90 vagnar. Samkvæmt upplýsingum frá Strætó bs. eru strætisvagnar í eigu félagsins nú um 95 talsins.