Strætó mun hefja næturakstur á völdum leiðar um helgar um áramótin samhliða öðrum breytingum á leiðakerfi og þjónustustigi. Þá mun þjónustutími verða lengdur til 01:00 einnig á völdum leiðum. Ennfremur mun hin sérstaka sumaráætlun, þar sem dregið er úr akstri, verða afnumin.

Áætlanir gera ráð fyrir því að leiðir 1, 2, 3, 5, 6 og 11 munu sinna næturakstri aðfaranótt laugar- og sunnudags. Stefnt er að því að þessar leiðir keyri frá miðbænum á hverjum klukkutíma til klukkan 04:00-04:30. Í einhverjum tilvikum munu leiðirnar aka eftir sínum hefðbundnu leiðum en sumar leiðir verða styttar. Leiðirnar munu eingöngu aka frá miðbænum og út í hverfin, en ekki til baka.

Þjónustutími verður lengdur á leiðum 1, 2, 3, 4, 5, 6, 11, 12, 15, 18.  Leiðirnar voru skipulagðar þannig að þær munu aka til 01:00 eða sem næst því.

Þá verða eftirtaldar breytingar gerðar á einstökum leiðum:

  • Leið 6 verður stytt og tíðnin aukin. Hún mun aka á 10 mín. fresti á annatímum og enda ferðir sínar í Egilshöll.
  • Leið 7 kemur ný inn í leiðakerfið og mun hún aka á milli Egilshallar og Helgafellslands í Mosfellsbæ á 30 mínútu fresti.
  • Leið 2 verður lengd og  mun hún keyra áfram úr Versölum og enda Mjódd, þar sem tenging við fleiri leiðir myndast. Leið 28 verður stytt á móti lengingu leiðar 2.
  • Leið 21 verður breytt og mun hún nú aka um Hafnarfjörð, Smárahvammsveg, framhjá Smáralind og enda í Mjódd. Leiðin mun ganga lengur fram á kvöld og mun einnig aka á sunnudögum, sem er mikil bót fyrir Hafnfirðinga og starfsfólk í Kauptúni.
  • Leið 35 mun aka í báðar áttir frá Hamraborg og verður á 30 mín fresti. Breyting sem bætir tengingu Kópavogsbúa við aðrar leiðir í Hamraborg.