Strætó skilaði 219 milljóna króna hagnaði »»Afkoma Strætó bs. á fyrstu níu mánuðum þessa árs var jákvæð um tæpar 219 milljónir króna. Í tilkynningu segir að afkoman sé nokkuð umfram áætlun, en gert var ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 96 milljónir króna á tímabilinu. Tekjur af fargjaldasölu voru um 63 milljónum króna meiri en gert var ráð fyrir í áætlun, en farþegum fjölgaði um nær eina milljón á árinu. Þá voru fjármagnsgjöld um 26 milljónum króna undir áætlunum. Aðrir rekstrarliðirsamkvæmt rekstrarreikningi voru að mestu leyti í samræmi við áætlanir Nánar um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum Tölublöð hér að ofan.