Um áramótin hækkar gjaldskrá Strætó um 4-4,8% og verður almennt staðgreiðslufargjald og stakt fargjald í appi Strætó á 440 krónur meðan þessi gjöld standa í stað fyrir börn, aldraða og öryrkja.

Fargjaldatekjur standa undir um 32% af almennum rekstrarkostnaði að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Strætó.

„Á fundi stjórnar Strætó bs. 9. desember sl. var samþykkt að hækka gjaldskrá Strætó í takt við almenna verðlagshækkun á rekstrarkostnaði Strætó,“ segir í tilkynningunni.

„Í rekstri Strætó vegur hækkun á launakostnaði og olíuverði um 70% af heildar rekstrarkostnaði.

Farmiðar og kort hækka minna

Almennt staðgreiðslugjald og stakt fargjald í appinu verða 440 kr., sem er hækkun um 4,8%, en staðgreiðsla og stakt fargjald í appinu fyrir börn yngri en 18 ára, aldraða og öryrkja verða óbreytt. Önnur fargjaldaform eins og farmiðar og kort hækka í kringum 4,0%.

Ný gjaldskrá Strætó mun taka gildi 3. janúar 2017.

Í eigendastefnu Strætó sem samþykkt var í apríl 2013 kemur fram að stefnt skuli að því að fargjaldatekjur standi undir allt að 40% af almennum rekstrarkostnaði Strætó. Í dag standa fargjaldatekjur undir um 32% af almennum rekstrarkostnaði félagsins.“