Eiginfjárhlutfall Straums Burðaráss (CAD) er í dag yfir 20%, en lögbundið lágmark er 8%.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum í kjölfar þeirra atburða sem átt hafa sér stað á Íslandi nýlega.

í tilkynningunni er fullyrt að bankinn haldi þétt utan um lausafjárstöðu sína og sé í skilum með allar skuldbindingar.

Þá kemur fram að nettóstaða Straums gagnvart Landsbankanum, Glitni og Kaupþingi hvað varðar afleiðuviðskipti og lánasamninga var jákvæð.   Þá kemur jafnframt fram að Seðlabanki Íslands tilkynnti Straumi í gær að hann myndi þann 22. október 2008 auka frádrag á óvörðum verðbréfum útgefnum af ofangreindu bönkunum þremur, sem lögð hafa verið fram til tryggingar í viðskiptum við Seðlabankann, í 50 af hundraði.

Jafnframt kemur fram að vegna þessa hefur Straumur lagt fram viðbótarveð hjá Seðlabankanum að fjárhæð um það bil 18,3 milljarðar króna sem Seðlabankinn hefur samþykkt í dag.

„Stefnan sem við höfum framfylgt undanfarið hálft annað ár eða svo hefur gert okkur kleift að komast í gegnum þetta erfiða tímabil,“ segir William Fall, forstjóri Straums í tilkynningunni.

„Við höfum minnkað efnahagsreikninginn og lagt aukna áherslu á þóknunartekjur, sem þýðir meðal annars að fjármögnunarþörf okkar er minni en ella hefði verið. Í öðru lagi höfum við sótt fram á erlendum vettvangi og þannig dregið úr hlutfallslegu vægi Íslands í starfseminni. Til marks um það var tveimur þriðju hlutu tekna okkar á fyrri helmingi þessa árs aflað utan Íslands. Markaðsaðstæður eru enn óhagstæðar bankastarfsemi almennt en óvenjulega hátt eiginfjárhlutfall og tiltölulega lítil endurfjármögnunarþörf koma okkur til góða.“