Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki hefur aukið hlut sinn í Dagsbrún í 10,34% úr 4,70%, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar. Kaupgengið kemur ekki fram til tilkynningunni.

Gengi Dagsbrúnar er nú 5,8 krónur á hlut. Straumur-Burðarás keypti 168.333.333 hluti, ef miðað er við það gengi er verðmætari hlutarins 976 milljónir króna.

Eftir viðskiptin á Straumur-Burðarás 613.173.190 hluti. 114.697.643 hlutir eru skráðir sem eign Iðu Fjárfestinga ehf., sem er 100% eignarhaldsfélag í eigu Straums-Burðaráss fjárfestingabanka.