Straumur-Burðarás hefur selt 4,03% hlut í Dagsbrún og á eftir viðskiptin 6,58% í félaginu, samkvæmt flöggun í Kauphöllinni. Sölugengið kemur ekki fram.

Um er ræða 239.000.000 hluti í viðskiptum. Miðað við síðasta gengi Dagsbrúnar, sem er 5,7 krónur hlut á hlut, má ætla að verðmæti hlutarins sé um 1,36 milljarðar.

Í gær var tilkynnt um að FL Group hefði aukið hlut sinn í Dagsbrún í 5,48% úr 3,96%.

Um er að ræða 90.000.000 hluti en kaupgengið er ekki gefið upp. Miðað við gengið 5,7 krónu krónur á hlut, er verðmæti hlutarins 513 milljónir króna.