Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. hefur selt alla eignarhluti sína í Keri hf. Kaupandi er félagið sjálft, en kaupin eru liðir í lækkun hlutafjár. Um er ræða sölu á 305.938.652 hlutum í Keri hf. sem er 34,02% af heildarhlutafé félagsins. Bankinn hefur jafnframt selt alla eignarhluti sína í Eglu hf. til félagsins sjálfs. Um er að ræða 446.816 hluti að nafnverði sem er 4,03% af heildarhlutfé félagsins.

Söluverð er trúnaðarmál en söluhagnaður Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka hf. ásamt viðskiptatengdum þóknunum er 700 milljónir kr.