Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. hefur gengið frá samkomulagi við Baug Group hf. um að selja á næstunni alla eignarhluti sína í nokkrum óskráðum félögum, þ.m.t. hlutafjáreign sína í Magasin Du Nord, Illum, Iceland, Booker o.fl. Við þau viðskipti mun bankinn innleysa um þrjá milljarða í hagnað á fyrsta ársfjórðungi 2006, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.