Samkvæmt tilkynningu til Kauphallar Íslands hefur Straumur-Burdarás Fjárfestingabanki stækkað skuldabréfaflokkinn STRB 04 3 um 2,5 milljarða að nafnverði, með það fyrir augum að greiða upp eldri óskráðan skuldabréfaflokk.

Skuldabréfin voru upphaflega gefin út þann 1. nóvember og hafa lokagjalddaga 1. nóvember 2010. Fyrir stækkun var nafnvirði bréfanna 12 milljarðar að nafnvirði en verður nú 14,5 milljarðar að nafnvirði.