Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. (Straumur) hefur samið við umsjónaraðila breska verðbréfa- og ráðgjafarfyrirtækisins Teathers Limited (Teathers), sem er í greiðslustöðvun, um kaup á nafninu "Teathers", ásamt tilteknum eignum sem lúta að rekstri starfseminnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straum.   Þar kemur fram að Straumur stefnir jafnframt að því að ráða allt að 80 starfsmenn Teathers, eða meirihluta núverandi starfsmanna þegar stoðsvið eru undanskilin.

Um er að ræða starfsmenn á öllum helstu sviðum starfseminnar, þ.e. fyrirtækjaráðgjöf, verðbréfamiðlun, greiningu og fjárfestingarsjóðum, auk nokkurra stoðsviða.

Þá kemur einnig fram að starfsemin verður rekin undir merkjum Teathers frá útibúi Straums í London.

Nick Stagg, forstjóri Teathers, mun leiða starfsemina. Hann mun taka sæti í framkvæmdastjórn Straums og heyra beint undir William Fall, forstjóra Straums.    „Viðbót þessarar starfsemi þjónar því markmiði Straums að breikka þjónustuframboðið á markaðssvæði bankans,“ segir William Fall, forstjóri Straums í tilkynningunni.

„Í þeirri sterku fótfestu sem við öðlumst í London með því að ráða öflugan hóp starfsmanna undir forystu Nick Stagg felast einnig aukin viðskiptatækifæri fyrir aðra starfsemi okkar í Norður- og Miðaustur-Evrópu, sem orðið hefur hluti af Straumi á undanförnum tveimur árum. Straumur hefur gætt þess að viðhalda öflugum efnahagsreikningi til þess að geta haldið áfram að bæta við þjónustumiðaðri starfsemi á sterkum grunni. Ég er afar ánægður með það skref sem við stígum nú og býð Nick og aðra starfsmenn velkomna."