Straumur fjárfestingabanki [ STRB ] hefur eignast starfsemi XL í Þýskalandi og Frakklandi, enda telur bankinn að þar sé um að ræða rekstur sem staðið geti undir sér, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Starfsemi þessara fyrirtækja verður haldið áfram innan sjálfstæðra eininga. Ætlan Straums er að styðja við áframhaldandi rekstur þeirra og verður eignaraðild bankans að þeim tekin til endurskoðunar eftir því sem rétt og tímabært þykir.

XL Leisure Group hefur óskað eftir greiðslustöðvun eftir að reynt hafði verið til þrautar um alllangt skeið að koma við fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins.

Áhætta Straums af kröfum á hendur XL nemur um 45 milljónum evra.

Á þessu stigi er ekki ljóst að hvaða marki þetta fé verður endurheimt. Þótt fjárhæðin sem um ræðir sé ekki léttvæg er hún lág með hliðsjón af eigin fé Straums, sem var 1,5 milljarðar evra í lok annars ársfjórðungs, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.