Straumur-Burðaráss fjárfestingabanki hf. (Straumur) hefur sent frá sér tilkynningu vegna frétta um veðlán félagsins. Þar kemur fram að í desember s.l. fékk Straumur að láni 133 milljónir evra frá erlendum lánastofnunum til að endurgreiða hluta af láni sem var þá á gjalddaga. Mismunur á upphæð lánsins sem var á gjalddaga, og nýja lánsins, var greiddur meðal annars með veðláni (repo) frá Seðlabanka Íslands að upphæð 50 millijónir evra.

Straumur tilkynnti til Kauphallar um endurfjármögnun á 133 milljónum evra eins og reglur Kauphallar gera ráð fyrir segir í tilkynningunni. "Straumur sá ekki ástæðu til að tilkynna um viðkomandi veðlán frekar en önnur veðlán sem bankinn hefur tekið hjá Seðlabanka Íslands, enda er slíkt ekki venja hvorki hjá Straumi né öðrum bönkum," segir þar.