Straumur gekk í dag að 33,4% hlut í tryggingafélaginu Sjóvá sem veðsettur var í félaginu. Í tilkynningu frá Straumi segir að daglegur rekstur félagsins muni ekki verða fyrir áhrifum vegna þessa.

Sjóvá var áður dótturfélag Moderna Finance, sem var í eigu Milestone.

Tilkynnt var í gær að Sjóvá hefði verið komið undir yfirráð skilanefndar Glitnis.