Gömlu bankarnir Kaupþing Banki hf., Landsbanki Íslands hf. og Glitnir hf. hafa sagt upp viðskiptavakasamningum sínum við Straum.

Straumur hefur samið við Nýja Kaupþing um viðskiptavaka með hlutabréf í Straumi fyrir eigin reikning Nýja Kaupþings.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straum.

Þar kemur fram að samningurinn felur í sér að Nýja Kaupþing setur daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Straums í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði skilvirk og gagnsæ.

Tilboð eru sett fram í viðskiptakerfi OMX Nordic Exchange á Íslandi, áður en markaður er opnaður og skulu ekki gilda lengur en innan dagsins.

Skilmálar viðskiptavakasamningsins eru eftirfarandi:

Nýja Kaupþing skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í að lágmarki 1.000.000 hluti í Straumi og skulu tilboð vera á því gengi sem Nýja Kaupþing ákveður í hvert skipti.

Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3,0%.

Hámarksfjárhæð heildarviðskipta, sem Nýja Kaupþing skuldbindur sig til að eiga eða selja dag hvern, skal vera kr. 25.000.000 að nafnverði.

Nýja Kaupþing mun hefja viðskiptavaktina tveim dögum eftir að viðskipti með hlutabréf Straums hefjast að nýju.